who,then,now.. bitches
Váá´mesta snilldar blogg í heimi
Myndir
10.08.2006 08:42:11 / steini5

BLESS BLESS

jæja þá er kallinn að fara til USA í skóla, ég flýg í dag klukkan 5..

ég mun vera duglegri að blogga eftir að ég kem út, en það verður samt ekki á þessari síðu.. heldur á nýrri og enn betri síður ;)

ég á eftir að búa hana til..en ég mun setja slóðina inná þessa síðu von bráðar...

ég bið bara að heilsa ykkur öllum.. og við sjáumst aftur í desember..

seinna steini...


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 16:45:48 / steini5

Bíla-íshokkí !!!!!!!!

já.. ég er enn á lífi.. samt nenni ég varla að standa í þessu bloggi.. ætla samt að henda smá inná þessa blessuðu síðu..

var að horfa á þátt í gær, Top Gear, magnaður þáttur um bíla, allavega.. þeir  voru með þátt sem var tileinkaður vetrar-ólimpíuleikunum.. þeir fóru með 10 austin mini-a á skautasvell, 5 bláa og 5 rauða, 2 mörk og risastóran uppblásinn hokkí-pökk.. þeir skiptu í tvö lið og spiluðu semsagt hokkí með bílunum, markmiðið var að keyra pökkinn inní markið.. (döö).. og var gaman að horfa á þá rústa 10 bílum á met tíma.. ég hef ákveðið að leika þetta eftir og bið ég alla þá sem tíma að rústa bílunum sínum að skrá sig hérna í "comment" og ef nógu margir skrá sig verður keppt í þessu í næsta mánuði.. ég mun verða dómari... því ég var að kaupa nýja rollu og tími ekki að drepa hana..

nýja rollan mín..

endilega skráið ykkur hér fyrir neðan..

seinna... steini


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 14:43:15 / steini5

tælandi í Tælandi

sælt veri fólkið..

jæja þá er maður því miður kominn heim frá Tælandi.. væri ekkert á móti því að vera þarna í 2 vikur í viðbót.. án efa ein skemmtilegasta ferð sem ég hef farið í.. og mæli ég eindregið með því að fólk skelli sér til Tælands..

en ja ég nenni ekki að blogga akkurat núna svo að við sjáumst bara...

og já by the way.. kallinn er loksins orðinn 20 ára.. öss hundgamall

seinna... steini


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.12.2005 17:15:24 / steini5

Sjáumst á næsta ári..

Jæja.. kallinn er búin að vera latur að skrifa hérna inná undanfarið.. enda jól og læti.. rétti tíminn til að vera latur ekki satt... en já, á morgun mun ég yfirgefa þetta land um einhvern tíma, þar sem för minni er heitið til Tælands.. ekki veit ég hvernig þessi ferð verður, enda veit ég voða lítið um Tæland.. veit bara að bjórinn er ódýr og að maður má ekki klappa litlum Tælendingum á hausinn.. eins furðulegt og það hljómar.. en já.. ég kveð þá bara í bili og sé ég ykkur aftur 12 Janúar á næsta ári.. þegar ég verð tvítugur.. öss kallinn orðinn stór strákur.. hehe og já... GLEÐILEG JÓL krakkar mínir.. ;) seinna... steini

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 17:33:55 / steini5

Loksins!!!!!!

jæja.. þá er maður loksins búin í prófunum.. shiiiiit hvað ég þoli ekki þessar helv.. prófvikur.. maður hangir heima hjá sér alla daga að rotna.. svo þegar maður á kanski frí í einn dag, þá eru allir hinir vinir manns að læra undir eikað annað próf..

var samt undantekning seinustu helgi þar sem að einn góður Svíi splæsti bjór allt kvöldið á mann og annan.. það endaði nú bara niðrá spítala hjá sumum.. (yeah U know who you are.. hehe) allvega.. það var mjög gaman það kvöld á Paddy's

Er núna að fara éta og eikað.. og síðan er það eitt gott miðvikudagsfyllerí með elskulega Aðlinum...:haha: held að ég hafi aldrei áður farið á fyllerí á miðvikudegi...!! humm :S

já..  svo nær maður í einkunnirnar á morgun... shii.. þetta reddast.. er það ekki??

seinna... steini

á meðan ég man.. tjékkiði á nýjasta þættinum af Sylvíu Nótt á www.skjarinn.is .. þetta er "best of" þáttur.. ég grenjaði bókstaflega úr hlátri..


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 16:43:19 / steini5

66°N

Þetta eru merkistímar í Íslensku samfélagi eins og við þekkjum það, þessir 5 ungu drengir ætla að sameina krafta sína og stofna fyrsta ALVÖRU Boy-bandið á Íslandi, þessir ungu drengir eru.. talið frá vinstri.. Óli "tískulögga" Berry... Steini "F8UR"... Gummi "FAG" Daníelsson.. Valdi "Big papa waldo"... Helgi "Biff" Arason..

þarna eruð þið með allar þessar helstu týpur, sem eru í boy-böndum í dag.. Óli er tískulöggan í hópnum, ávalt sætur og ný meikaður.. ég (steini) er harði gaurinn, svona eins og asnalegi gaurinn í Backstreed boys, alltaf með sólgleraugu 8) og tattoo... Gummi er homminn í hópnum sem allar stelpurnar fíla mest... Valdi er svarti maðurinn sem rappar ALLTAF inní öllum lögum, eins og gaurinn í blue.. og Helgi Biff er lúðalega sæti gaurinn, sem allar stelpurnar segja að hann sé svo mikil dúlla... :haha:

já þetta er plottið.. síðan er næst á dagskrá að búa til stuttmynd um ævi hljómsveitarinnar, og síðan munum við taka að okkur einhver "gigg" á árshátíðum og afmælum næsta vor, þegar við erum búnir að æfa nokkur lög og læra að dansa hjá Önnu Leu..

þið bíðið bara spennt eftir að heyra í okkur á FM eða KISS einhverntíman á næstu mánuðum.. erum að spá í að gefa út jólalag.. taka eitthvað gott "cover-lag" eins og t.d. Last Christmas með Wham..

staffið hjá 66°N er eftirfarandi...

Helgi 50 og Hilmar eru lífverðir... Atli Annels er stílistinn okkar.. Maggi "Max" Stef er rótarinn okkar (hann bjó einnig til myndina hér að ofan).. Jón Grautur er eini dansarinn okkar..

ef þið hafið fleiri hugmyndir sambandi við lög sem við getum tekið, eða fleira fólk í staffið.. okkur bráðvantar kvennmenn til að dansa með Jóni.. endilega tjáið ykkur um þetta...:haha:

seinni.. steini


» 74 hafa sagt sína skoðun

25.11.2005 20:06:21 / steini5

Pictures...

jæja.. þá er ég búin að henda nokkrum vel völdum myndum frá 80's kvöldinu á netið.. chekkið á myndunum http://www.picturetrail.com/steini_f8ur

seinna.. steini


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.11.2005 17:18:11 / steini5

Red, Black and White...

Djöfull er maður tussu-þreyttur eftir þessa helgi...

byrjaði á því að Aðallinn ákvað að hanga upp í skóla í 24 klst gegn greiðslu.. (heitir víst "námsmaraþon") það var allveg ótrúlega gaman... hægt að finna ýmsar leiðir til að stitta sér stundir.. t.d. er ég slime-basketball meistari eftir kvöldið.. líka mjög sniðugt hvað það þarf lítið til að skemmta fólki þegar það er komið með smá svefngalsa..;) þetta var mjög gaman enda snilldar hópur þarna saman kominn.. ég vill líka hrósa þeim sem voru svo ótrúlega harðir að læra í 22 klst af 24.. þvílílur dugnaður..

ég vaknaði síðan klukkan 6 á laugardeginum.. fékk mér lambalæri í morgunmat.. fór í 80's jakkaföt.. sleikti hárið bakvið eyru.. setti klút á hausinn og fór til Rakelar í magnað 80's party hjá Aðlinum.. hrósa hér með fólki fyrir þessi mögnuðu out-fitt sem þau voru í .. gerði partyið bara skemmtilegra.. sing-star kom líka sterkur inn, ásamt bjór, bongunni, og dansi..:haha: síðan var farið á hinn sívinsæla skemmtistað Traffic.. þar var mikið dansað og mikið fjör þar sem Aðallinn skar sig úr frá fjöldanum í þessum 80's fötum.. bara snilld.. síðan var farið í eftir party til Rakelar.. harka öss!! en það stóð aðeins yfir í 30min vegna þess að fólk var frekar drukkið og þreytt..

ég vaknaði síðan seint á sunnudeginum við það að móðir mín var að þrífa einhverja skápa fyrir jólin!?!? og viti menn til að komast í smá fíling þá var hún að blasta jólalögum fram í stofu.. mér líka dauðbrá þegar ég vaknaði og leit á síman minn.. og viti menn það var ennþá 20. Nóv... shiit það ætti að banna þetta.. engin jólalög fyrr en 13.Des... síðan fór ég seinna um kveldið og sótti Reyni og við skelltum okkur á The White Stripes í höllinni.. ég ætla nú ekki að segja mikið um þá en tónleikarnir voru geggjaðir.. fötin sem Jack White var í voru geggjuð.. og sviðið var allt svart rautt og hvítt.. sem var já.. geggjað töff... snilldar tónleikar...:haha:

ég mun henda einhverju sérvöldum myndum frá maraþoninu og 80's teitinu seinna á netið.. þegar ég nenni því.. so keep on trucking..

seinna... steini


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.11.2005 23:30:52 / steini5

WTF..??

ég vissi að það eru til allskonar gerðir af fótbolta.. köngulóar-fótbolti.. sokka bolti.. bear cup fótbolti.. en ekki vissi ég af þessu...

fótbolti spilaður með froska-lappir og kafara-gleraugu... veit ekki um ykkur.. en þetta langar MIG til að prufa... veit einhver um fleiri útgáfur á fótbolta???

spá pæling bara..

seinna... steini


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.11.2005 15:22:01 / steini5

I'm back..

Djöfull var hressandi að skreppa svona aðeins til USA.. er samt frekar svekktur að hafa misst af bústaðar ferð Aðalsins þar-seinustu helgi..:( Maður er búin að vera heira sögur úr þessari ferð allveg hægri vinstri frá ónefndum öðlum.. gaman af því.. sukk og svínerí.. og svo var einhver að tala um einhverja kanínu.. er ekki allveg viss hvað það þíðir..;) hummm...:$

já.. það var Halloween þegar ég var þarna úti í Orlando og skellti ég mér á Halloween Horror Nights í Universial Studios.. það var allveg magnað.. allt út í draugahúsum og rússíbönum og stuffi.. svo voru einhver skrímli og gaurar með keðjusagir út um allan garð.. læddust aftan að manni og búú..!!! voru að því að bregða manni.. sem var mjög skemmtilegt.. hefur aldrei verið ráðist á mig með keðjusög áður...:haha:

annars er bara ágætt að vera kominn heim.. mætingin mín er ekkert upp á sitt besta svo ég má ekkert skrópa sem eftir er annarinnar.. sem er vesen.. en lítið eftir..

eins og glögt fólk tekur eftir þá er ég búin að skipta um könnun hér á hægri hönd.. það er bara vegna þess að Guðni kom vælandi til mín áðan og bað mig um að taka könnunina um hann út af... það er ekki hægt að segja nei við þetta andlit...

svo sætur.. hehe.. en já núna er spurt um Baldvin og hvað hann mun gera af sér í Tælandi.. þetta er Baldvin....

endilega kjósið..

seinna.. steini


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.10.2005 19:31:59 / steini5

Sjáumst..

já kallinn er að fara leggja land undir fót.. á morgun (25.oct) mun ég fara til Orlando baby... ég bara vona að Aðallinn nái að skemmta sér í bústaðnum, svo að það verði nú endurtekið seinna, þegar ég er á landinu.. og ég bara bið að heilsa í bili..

hérnar er falleg mynd af Guðna, sem ég ætla að láta fylgja skoðanakönnuninni hérna hægra megin.. endilega kjósið..

sjáumst.... steini


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.10.2005 20:04:39 / steini5

BAHAHAHAHa......

Sylvía Nótt

Sylvía Nótt

Sylvía Nótt.... vá hvað ég elska þessa manneskju.. var að horfa á Kastljósið núna rétt áðan þar sem vinkona mín hún Sylvía Nótt var í viðtali... ég bóskstaflega grenjaði úr hlátri.. skillurru.. þegar hún byrjaði síðan að syngja váááá´.. "þúst sumir geta farið á háu nóturnar eins og Jessica Simpson skillurru.. en aðrir bara ekki sko.. þúst barra sry sko" hahaha.. allgjör snilld.. þetta er án efa einn besti karakter sem hefur verið búin til.. nýja serían hennar er byrjuð og er annar þátturinn í kvöld... shiiiit hvað MIG :lol:  hlakkar til... skillurru..

"þúst halló.. ég er náttla multy-talent skillurru.. þúst í gær var é módel skillurru.. o svo allt í einu bara þúst singstjarna þúst í nokkrar mínútur bara rétt áðan skillurru.. o svo barra skillurru á morgun verð ég bara eika með þáttinn minn og eika.. skillurru.. ég er svo ógeslega fucking fræg skillurru..." -Sylvía Nótt

hvernig er fólkið þarna úti að fíla vinkonu mína.. Sylvíu nótt??

seinna... steini


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.10.2005 18:52:23 / steini5

Kvennfrídagur hvað????

Af hverju þarf kvennfólk alltaf að finna eikað til að væla yfir... ég þoli þetta ekki.. þær hafa þetta svo gott... þær eru allveg með jafn há laun og kallar... sjáiði til dæmis flugleiðir... það er einhver ung stelpa sem ræður öllu þar.. ekki held ég að hún hafi komist yfir það fyrirtæki bara með því að væla.. og hvað er þetta helv.. kvennafrídaga kjaftæði... þær eru alltaf að finna upp á einhverjum svona konu dögum.. ekki veit ég um marga daga sem eru bara tileinkaðir köllum, nema bóndadagurinn, hvað finnst fólki svona allmennt um þetta mál????? er þetta ekki bara eikað eilífðar væl í þessum konum..?? eða eiga þær svona bágt..???

bara svona svo að fólk viti er ég engin karlremba þannig.. bara skil ekki þetta væl í konum að þær eigi alltaf svo bágt..!!!

endilega tjáið ykkur...

seinna... steini 


» 14 hafa sagt sína skoðun

15.10.2005 18:34:30 / steini5

SORI

Váááá... ég sit hérna fyrir framan TV-ið og er að horfa á mesta sora sem ég hef séð... ef ég vissi um fjarstýringuna þá myndi ég skipta um stöð.. en ég nenni ekki að standa upp svo... já ....þetta er enn einn helvítis raunveruleika þátturinn.. eins og það er ekki búið að gera nóg af þeim.. og núna eru þessir gaura sem búa til þessa þætti búnir með allar góðu hugmyndirnar svo að þeir búa til þennan sora.. ég veit að þið eruð spennt að vita hver þetta er svo að... þátturinn heitir " Hogan knows best " og fjallar um líf hins útbrunna og eldgamla wrestling gaurs Hulk Hogan og fjölskylduna hans... þó að Hulk Hogan sé ofur svalur þá er þetta mesti sori sem ég hef séð.. Hogan var í fýlu í þessum þætti af því að sonur hans sem er 14 var kominn með kellingu og þá gat hann ekki verið að hanga eins mikið með syni sínum út af kellingunni... þá fór Hogan bara að skjóta úr byssunni sinni til að fá smá útrás... svo fór Hogan og talaði við eikað mótel og lét þessa FOXY gellu fara og reyna við son sinn og fá hann til að fara með sér eikað.. sem sonur hans náttla gerði af því að þessi gella var FINE..!! já og planið var að sonur hans myndi bara gleyma kærustunni sinni og eikað.. svo komst kærastann hans að þessu og varð brjáluð út í soninn hans Hogan og eikað... æjj vááá... þetta er svo steikt.. pælið í því Hogan er að reyna fá 14 ára son sinn til að " halda framhjá " kærustunni svo að hún hætti með honum og þá getur hann aftur farið að leika við son sinn... þetta er bara tóm steipa.. ég held að Hulk Hogan hafi verið barinn einum og oft í hausinn´með stól á meðan hann var í Wrestling.... þessi þáttur er á Sirkus ef einhver er forvitinn um þennann sora...

ef einhver er búinn að sjá þennan sora.. endilega commentið á þáttinn...!!

seinni...steini


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.10.2005 16:39:54 / steini5

Tjékkið á þessu

Ímyndunar aflið í þessum dúdda er allveg til fyrirmyndar... þið VERÐIÐ að tjékka á þessu... aight

http://www.hi.is/~jja/

seinna... steini


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2